Nýlega voru tekin í notkun ný röntgentæki eftir gagngerar endurbætur á röntgendeild sjúkrahússins.

Nú í haust var stigið mikilvægt skerf þegar gömlu Hitachi röntgentæki stofnunarinnar voru leyst af hólmi.  Gömlu tækin  frá árinu 1983 voru orðin mjög slitin og löngu búin að rækja sitt hlutverk.

Nýju tækin voru fengin í gegn um sameiginlegt útboð þar sem tekin voru eins tæki frá Toshiba fyrir sjúkrahúsin á Ísafirði, Akranesi og í Keflavík.   

Á myndinni má sjá nýju röntgentækin komin í notkun.


Höf.:ÞÓ