Nú er hafin bólusetning gegn inflúensu. Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni Torfnesi á Ísafirði og er opið alla virka daga kl. 11:00 – 12:00 og 14:00 til 15:30 frá 22. september til 31. október.

Eftir 1. nóvember verður svo opið alla virka daga frá kl. 14:00 til 15:30

Bólusett verður á öðrum heilsugæslustöðvum á opnunartíma þeirra.

Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.

Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.

Höf.:SÞG