Hjartaheill og SÍBS í samstarfi við sveitarfélög og Heilbrigðisstofnanir Vestfjarða og Vesturlands munu bjóða Vestfirðingum ókeypis heilsufarsmælingu 9.-12. maí næstkomandi.

Mælingarnar ná til helstu áhættuþáttta lífsstílssjúkdóma þar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur auk þess sem boðið verður upp á öndunarmælingu fyrir þá sem mælast lágir í súrefnismettun. Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að svara lýðheilsukönnun. Fræðsla um lífsstílstengda sjúkdóma verður í boði, hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslunni verða á staðnum og veita ráðgjöf og eftirfylgd.  

Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS mun að þessu tilefni halda erindi um „Stóru myndina í heilbrigðismálum“ í Fræðslumiðstöð Vestfjarða Ísafirði 11. maí kl. 12-13.  Fjarfundur verður á Patreksfirði. 

Sjá dagskrá fyrir SÍBS Líf og heilsa verkefnið í heilsugæslum í: 

Patreksfirði, Stekkum1, þriðjudaginn 9. maí, kl. 18 – 20

Tálknafirði, Strandgata 38, miðvikudaginn 10. maí, kl. 10 – 12

Bíldudal, Tjarnarbraut 3, miðvikudaginn 10. maí, kl. 10 – 12

Þingeyri, Vallargötu 7, miðvikudaginn 10. maí, kl. 16 – 18

Flateyri, Eyrarvegi 8, miðvikudaginn 10. maí, kl. 17 – 19

Ísafirði, Torfunesi, fimmtudaginn 11. maí, kl. 10 – 14

Suðureyri, Aðalgötu 2, fimmtudaginn 11. maí, kl. 15 – 17

Bolungarvík, Höfðastíg 15, fimmtudaginn 11. maí, kl. 15 – 17

Súðavík, Grundarstræti 1, fimmtudaginn 11. maí, kl. 18 – 20

Drangsnesi, Holtsgata/samkomuhús, föstudaginn 12. maí, kl. 10 – 12

Hólmavík, Borgarbraut 6-8, föstudaginn 12. maí, kl. 14 – 17.

 

Reglulega verður greint frá niðurstöðum mælinga á Facebook síðu SÍBS auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að fá sínar niðurstöður sendar í tölvupósti ásamt heildarniðurstöðum. Oddvitar, bæjar- og sveitarstjórar munu opna mælingarnar í sinni heimabyggð.

Höf.:SÞG