Byrjað verður að bólusetja gegn inflúensu á heilsugæslustöðinni á Ísafirði í dag.

Allir eldri en 60 ára ásamt börnum og fullorðnum sem hafa langvinna eða illkynja sjúkdóma eru hvattir til að láta bólusetja sig. Hægt er að mæta í bólusetninguna milli kl. 14:00 og 15:30 alla virka daga.
Bólusetningin kostar 600 kr. auk komugjalds.

Höf.:ÞÓ