Frekari Útskýring á símanúmerum
FORSÍÐA SÍMANÚMER OG OPNUNARTÍMAR STARFSFÓLK VERÐSKRÁ LAUS STÖRF POLSKI ENGLISH
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
FRÉTTASÍÐA
Kl. 09:29, 11.06.2008
Fjölburafæðingin um garð gengin!

Hún hafði það af sú litla að koma öllum krílunum í heiminn. Nú kúra 7 maríuerluungar í kotinu við fæðingardeildina og virðast una hag sínum vel, alltént er lystin næg. Auðvitað er erfitt að telja svona strá í heystakki en ekki er stætt á því að véfengja talningu alvanra höfðatöluljósmæðranna á FSÍ. Engum sögum fer af sængurgjöfum en víst er að nú er flugbrú með maðka og önnur kikvendi að hreiðrinu enda þarf að koma ungviðinu á legg - eða öllu heldur væng - sem fyrst.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 10:30, 28.05.2008
Af mönnum og dýrum

Þessi myndarlega maríuerluhnáta hefur gert sér hreiður í einu af mörgum skotum á byggingu Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði. Þar virðist hún una hag sínum vel, enda veit hún sem er að hún er í góðum höndum þegar fyrstu goggarnir gægjast í heiminn. Hún þó ólíkt rólegri yfir þessu öllu en ljósmæðurnar sem bíða með öndina í hálsinum enda eru fjölburafæðingar ekki daglegt brauð á fæðingardeildinni.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 14:43, 26.05.2008
Sjúkraliði til afleysingar í heimahjúkrun

Vakin er athygli sjúkraliða á auglýsingu um sumarafleysingar í heimahjúkrun. Sjá: Laus störf.

Lesa meira

// Hörður Högnason

Kl. 14:16, 13.05.2008
Opið á Tjörn á Þingeyri í sumar

Hjúkrunardeildin á Tjörn á Þingeyri verður ekki lokað tímabundið í sumar eins og gert hafði verið ráð fyrir. Stjórnendur Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ ákváðu þetta í morgun.

Lesa meira

// Hörður Högnason

Kl. 14:29, 13.03.2008
Fasteignir til Fasteigna ríkissjóðs

Ákveðið hefur verið að Fasteignir ríkissjóðs (FR) taki í áföngum við umsjón og rekstri fasteigna sem nú eru reknar af heilbrigðisstofnunum.

Lesa meira

// Þröstur Óskarsson

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29
 Læknavakt 863-8000   Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið)
FYRST OG FREMST
HEILSUGÆSLA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
STJÓRNSKIPULAG
STOÐDEILDIR
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
SAGA HSÍ
VINNUSTUND
ISLAND.IS
FRÆÐSLA
PÓLSK-ÍSLENSK ORÐABÓK
NÝBURAR
YTRI TENGLAR
HEILBRIGÐISSTOFNANIR
FAGFÉLÖG
OPINBER STJÓRNSÝSLA
ERLENDIR TENGLAR
ÍSAFJÖRÐUR
LÝÐHEILSUSTÖÐ
SAMTÖK OG FRÓÐLEIKUR
MENNTASTOFNANIR
PÓSTLISTI
Netfang:
Aðgerð:
FYRIRSPURN
Senda fyrirspurn á:
Nafn:
Netfang:
Titill:
Fyrirspurn:


Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka