Frekari Útskýring á símanúmerum
FORSÍÐA SÍMANÚMER OG OPNUNARTÍMAR STARFSFÓLK VERÐSKRÁ LAUS STÖRF POLSKI ENGLISH
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
FRÉTTASÍÐA
Kl. 15:33, 19.05.2010
Notkun heimasíðu stofnunarinnar

Heimasíða Heilbrigðisstofnunarinnar, www.fsi.is, var notuð nokkuð af vefvöfrurum frá maí 2009 til apríl 2010 þó svo að hún fari seint í flokk vinsælustu síðna landsins. Að meðaltali heimsóttu 123 notendur síðuna vikulega og flettu henni 448 sinnum. Yfir heilt ár var undirsíðan "Heilsugæsla" oftast lesin eða 3170 sinnum yfir tímabilið, þá "Laus störf" sem fékk 2964 heimsóknir og svo "Fjórðungssjúkrahúsið" sem fékk 2870 heimsóknir. 83% notenda tengdust síðunni frá tölvum staðsettum á Íslandi (eða stilltar á slíkt).

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 10:16, 07.05.2010
Endurhæfingardeildin fær gjöf

Verkalýðsfélag Vestfjarða gaf endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunarinnar mjög veglega gjöf á dögunum en um er að ræða göngubretti frá Enraf nonius EN-MOTION. Brettið er mjög fullkomið og með fjölbreytta notkunarmöguleika. Þetta er mjög kærkomin gjöf þar sem gönguþjálfun er mikið notuð við endurhæfingu allra aldurshópa.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 09:56, 05.05.2010
Gaf hálfa milljón til kaupa á sneiðmyndatæki

Krabbameinsfélagið Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum hefur afhent Minningarsjóði Úlfs Gunnarssonar, fyrrum yfirlæknis, og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, hálfrar milljónar króna framlag sem ætlað er til stuðnings kaupa á nýju sneiðmyndatæki fyrir stofnunina.

Lesa meira

// Þröstur Óskarsson

Kl. 08:43, 03.05.2010
Söfnun fyrir sneiðmyndatæki

Árið 2005 fór af stað söfnun til kaupa á sneiðmyndatæki fyrir Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði (áður HSÍ). Keypt var notað tæki fyrir hluta söfnunarfjárins, en því miður bilaði tækið á síðastliðnu ári. Liðlega 1.300 einstaklingar höfðu verið rannsakaðir í tækinu hér á Ísafirði.

Lesa meira

// Þröstur Óskarsson

Kl. 11:19, 16.04.2010
Leiðbeiningar vegna gosösku

Vegna eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli hefur landlæknisembættið sett inn upplýsingar og leiðbeiningar um varnir gegn gosöskunni. Þær eru eftirfarandi:

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29
 Læknavakt 863-8000   Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið)
FYRST OG FREMST
HEILSUGÆSLA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
STJÓRNSKIPULAG
STOÐDEILDIR
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
SAGA HSÍ
VINNUSTUND
ISLAND.IS
FRÆÐSLA
PÓLSK-ÍSLENSK ORÐABÓK
NÝBURAR
YTRI TENGLAR
HEILBRIGÐISSTOFNANIR
FAGFÉLÖG
OPINBER STJÓRNSÝSLA
ERLENDIR TENGLAR
LÝÐHEILSUSTÖÐ
ÍSAFJÖRÐUR
SAMTÖK OG FRÓÐLEIKUR
MENNTASTOFNANIR
PÓSTLISTI
Netfang:
Aðgerð:
FYRIRSPURN
Senda fyrirspurn á:
Nafn:
Netfang:
Titill:
Fyrirspurn:


Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka